Egilsslóð
Leiðsögn um Egilsslóð
Leiðsögumaður frá Landnámssetri fer með hópa í ferð á milli nokkurra merktra sögustaða úr Egils sögu. Ferðin hefst í Landnámssetri og þaðan eru sögustaðir heimsóttir hver af öðrum.
Lengd ferðar og verð er eftir samkomulagi.
Dæmi um eins og hálfs til tveggja tíma ferð:
Brákarey, Skallagrímsgarður, Granastaðir, Borg á Mýrum og Krumshólar.
Verð kr. 28.000. Hver klukkustund til viðbótar kostar 7000 krónur.
Vörður hafa verið hlaðnar á níu stöðum sem tengjast sögunni:
Brákarsund, Skallagrímsgarður, Granastaðir, Borg á Mýrum, Rauðanes,
Ánabrekka, Álftanes, Krumshólar og Hvítárvellir
Vörðurnar á Egilsslóð - upplýsingar og kort













